Lína fer í eltingaleik við lögregluþjóna
Þegar fólkið í bænum áttar sig á því að á Sjónarhóli búi níu ára stelpa alein eru tveir lögregluþjónar sendir að sækja hana og flytja á barnaheimili. Lína hefur þó engan áhuga á því, enda má þar hvorki vera með hest né apa. Þegar lögregluþjónarnir reyna að handsama Línu snýr hún sig úr greipum þeirra og býður þeim í staðinn í æsilegan eltingaleik!