Litla tehúsið í Tókýó

Forsíða kápu bókarinnar

Fyrir ferðabloggarann Fionu hefur Japan alltaf verið efst á óskalistanum. Þegar hún vinnur ferð þangað, þar sem allt er innifalið, virðist sem draumur hennar sé loks að rætast. En þegar hún kemur til hinnar líflegu og iðandi Tókýó stendur hún óvænt augliti til auglitis við manninn sem hún hélt að væri ást lífsins, ljósmyndarann glæsilega, Gabe.

Fiona á erfitt með að fyrirgefa Gabe, sársaukinn eftir síðasta fund þeirra fyrir tíu árum nístir enn í hjarta hennar. En munu Fiona og Gabe sjá hvort annað í nýju ljósi í þessari framandi borg innan um tignarleg hof, glitrandi skýjakljúfa og bleiku kirsuberjablómin?

„Þessi er með þeim allra bestu ... Óhikað fimm stjörnur frá mér!“ – Sue Moorcroft

Ummæli lesenda:

„Ég elskaði þessa sögu ... dásamlegur og heillandi lestur sem hreif mig með sér til lands sem mig hefur alltaf langað til heimsækja.“ – „Ein af bestu bókum sem ég hef lesið.“ – „Yndisleg bók sem lyftir manni upp.“ – „Gat ekki lagt hana frá mér.“