Litli bróðir

Forsíða kápu bókarinnar

Þetta kvæði fjallar um dreng sem verður fyrir þeirri sérkennilegu lífsreynslu að eignast lítinn bróður. Skyndilega færist athygli allrar fjölskyldunnar yfir á þennan litla bróður sem þó virðist ekkert vita í sinn haus og orgar allar nætur svo engum kemur dúr á auga. Hvað er eiginlega til ráða? Bara eitt: Að skila honum.

Síðan barnið birtist hér

bölvanlega gengur mér

líf mitt nú svo erfitt er

ansi þungur róður.

Við skulum bara skila litla bróður.

Litli bróðir er glettin og hlýleg bók um flóknar tilfinningar. Halla Oddný Magnúsdóttir orti kvæðið og teiknaði myndirnar. Litli bróðir er fyrsta barnabók höfundar.