Litli bróðir
Þetta kvæði fjallar um dreng sem verður fyrir þeirri sérkennilegu lífsreynslu að eignast lítinn bróður. Skyndilega færist athygli allrar fjölskyldunnar yfir á þennan litla bróður sem þó virðist ekkert vita í sinn haus og orgar allar nætur svo engum kemur dúr á auga. Hvað er eiginlega til ráða? Bara eitt: Að skila honum.