Litli Kristur
Hver er Litli Kristur?
Á ískaldri jólanótt finnst óttasleginn drengur einn og yfirgefinn á Laugavegi. Hann veit ekki hver hann er, hvaðan hann kom eða hvert hann er að fara.
Enginn leitar hans. Enginn kannast við hann. Á spítalanum kemur í ljós að hann er með blátt blóð og í augum hans blasir himingeimurinn við.
María og Jósep taka hann inn á heimili sitt þar sem stelpuskottan Dí vill ráðskast með hann og ákveður samstundis að hann sé bróðir hennar. Krakkarnir í skólanum laðast að honum því í honum býr einstök góðvild og hlýja. Svo virðist hann vita allt. Líka það sem gerist í framtíðinni.
Drengurinn þráir ekkert heitar en að finna foreldra sína en hið óvænta bíður hans handan við hornið.