Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Litli prinsinn – myndabók

Byggð á sögu Antoine de Saint-Exupéry

  • Höfundar Louise Greig og Sarah Massini
  • Þýðandi Margrét Gunnarsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Litli prinsinn er hugljúf perla með sígildan boðskap um það sem er mikilvægast í lífinu. Í þessari glæsilega myndskreyttu bók er sagan löguð að börnum og hefur fangað hjörtu ungra lesenda víða um lönd. Fegurðin býr í hinu leynda ...

Flugmaður, sem brotlenti í eyðimörkinni, er vakinn einn morgun af einstökum strák sem segir: „Viltu teikna fyrir mig kind?“ Flugmaðurinn dregur fram blað og blýant ...

Þannig er upphafið á þessari töfrandi sögu sem hefur farið sigurför um heiminn og haft djúpstæð áhrif áhrif á lesendur.

Fáar bækur hafa notið jafn mikillar hylli og Litli prinsinn.