Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Lofaðu mér því

Forsíða kápu bókarinnar

Lou er hamingjusöm og hæstánægð með lífið og tilveruna. En skyndilega fer líf hennar á hvolf og hún þarf að byrja upp á nýtt. Henni býðst að flytjast í lítið þorp í Cotswalds og vinna fyrir gamlan skrögg að nafni Edgar Allsopp. Hann gefur henni loforð sem ekki er hægt að hunsa.

Í þorpinu býr hinn ómótstæðilegi Remy. En Lou er ekki búin að jafna sig á síðasta ómótstæðilega manninum sem hún kynntist. Hún þarf á einhverju nýju að halda. Leyndarmál kvisast fljótt í litla þorpinu og sumir eiga erfitt með að standa við gefin loforð. En engan gat grunað hvað var í vændum ...

Snjólaug Bragadóttir íslenskaði.

Enski verðlaunahöfundurinn Jill Mansell hefur selt hátt í 14 milljónir eintaka af bókum sínum – og er einn allra vinsælasti höfundur ljúflestrarbóka í heiminum.