Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Maðurinn í skiltinu

Forsíða kápu bókarinnar

Þegar Ramón býðst að vakta risastórt auglýsingaskilti Coca-Cola-fyrirtækisins við þjóðveg í hverfinu grípur hann tækifærið og ákveður að setjast að í skiltinu í leit að merkingu hlutanna. Ákvörðun hans kemur illa við nágrannana, sem finnst hann ógna heiðri hverfisins, og fyrr en varir taka þeir málin í sínar hendur.

Skáldsaga byggð á sannsögulegum atburði eftir síleska rithöfundinn Maríu José Ferrada. Maðurinn í skiltinu er önnur skáldsaga hennar en sú fyrsta, Kramp, kom út hjá Angústúru árið 2023. Ferrada hefur í þrígang unnið til verðlauna síleska menningarmálaráðuneytisins.