Mamma er geðvondur dvergur
Fúli er dvergur. Mjög fúll dvergur.
Hann brosir ekki.
Hann hlær ekki.
Hann á enga vini og honum er alveg sama.
Honum er alveg sama um alla nema sjálfan sig.
Þangað til einn morguninn að hann finnur stærsta gullmola sem hann hafði nokkurn tíma séð. Nema hvað þetta er ekki gullmoli ... þetta er GULLEGG!
Úr egginu klekst glaður lítill dreki sem er sannfærður um að Fúli sé móðir hans. Þvílíkt endemis rugl!
Fúli og Moli fara að leita að raunverulegri mömmu drekans. Þetta ólíklega par virðist eiga mörg ævintýri fyrir höndum