Meira sokkaprjón
Fjölbreytt og eiguleg prjónabók með 74 uppskriftum að einlitum og marglitum sokkum fyrir stóra og smáa fætur. Uppskriftirnar eru einfaldar og aðgengilegar og fremst í bókinni eru útskýringar á aðferðum. Þetta er áttunda bók höfundar og hafa fyrri bækur notið mikilla vinsælda, þar á meðal eru Sokkaprjón, Vettlingaprjón og Húfuprjón.