Höfundur: Guðrún S. Magnúsdóttir

Meira sokkaprjón

Fjölbreytt og eiguleg prjónabók með 74 uppskriftum að einlitum og marglitum sokkum fyrir stóra og smáa fætur. Uppskriftirnar eru einfaldar og aðgengilegar og fremst í bókinni eru útskýringar á aðferðum. Þetta er áttunda bók höfundar og hafa fyrri bækur notið mikilla vinsælda, þar á meðal eru Sokkaprjón, Vettlingaprjón og Húfuprjón

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Tuskuprjón Guðrún S. Magnúsdóttir Forlagið - Vaka-Helgafell Í bókinni eru 35 uppskriftir að fjölbreyttum og fallegum tuskum. Tuskur eru nauðsynlegar á hverju heimili og kjörið að prjóna þær í uppáhaldslitunum. Heimaprjónaðar tuskur eru upplagðar sem fljótlegt og einfalt prjónaverkefni og góð hugmynd að gjöf sem kemur alltaf að góðum notum.