Milli himins og hér
Ljúflestrarbók ársins í Svíþjóð 2025.
Eftir átta mánuði verður Majlis loksins dáin. Loksins er kannski óviðeigandi orðaval. Því í rauninni vill Majlis alls ekki deyja. Allra síst núna þegar Ronja dóttir hennar á von á barni og hún að verða amma. Nei, það var alls ekki svona sem hún hafði séð fyrir sér ævilokin. En þannig verður það að vera.
Þegar Ronja hringir, stuttu eftir fæðingu dóttur sinnar, og segir að hún hafi hent svikulum eiginmanni sínum út breytist allt. Majlis ákveður að flytja inn til Ronju í Stokkhólmi og yfirgefa skóga Norður-Svíþjóðar þar sem hún hefur búið allt sitt líf.
En hvernig á hún að fá dóttur sína til að sætta sig við hina örlagaríku ákvörðun sem hún hefur tekið? Og hvað gerist ef endalokin verða allt önnur en Majlis ímyndar sér?
Milli himins og hér er ljúf og hjartnæm skáldsaga um það sem við höfum ekki stjórn á í lífinu – og það sem verður stundum á vegi okkar þegar við eigum síst von á því. En þetta er líka saga um listina að taka lífinu opnum örmum, jafnvel þegar það tekur á sig óvænta mynd. Því stundum er það einmitt þegar við höldum að sögunni sé lokið sem allt byrjar.
Milli himins og hér hefur slegið í gegn í heimalandinu Svíþjóð, hlotið fjölda viðurkenninga og fer nú sigurför um heiminn.
Ljúflestrarbók ársins í Svíþjóð 2025.
Sigurvegari sænsku hljóðbóka-verðlaunanna, Storytel awards 2026.
„Ég er djúpt snortin og á erfitt með að finna orð. Milli himins og hér er hlý, áhrifamikil og ógleymanleg skáldsaga sem hreif mig og gagntók frá fyrstu síðu.“ / Agneta Norrgård, bókmenntagagnrýnandi, Svíþjóð
„Þungar ákvarðanir, djúp sorg og ljómandi gleði í feelgood-sögu með öllu.“ / Femina-tímaritið, Svíþjóð