Milli mála 2026

Forsíða kápu bókarinnar

Veftímaritið Milli mála er gefið út af Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum við Háskóla Íslands. Þar birtast greinar um bókmenntir, málvísindi, kennslufræði, þýðingar o.fl. Sérhefti ársins er helgað leikritaþýðingum og þar er að finna erindi sem haldin voru á málþingi um leikritaþýðingar í Eddu 1. desember 2025.