Móðurást: Lausnargjaldið

Forsíða kápu bókarinnar

Fjórða bókin í verðlaunaritröð höfundar um Oddnýju langömmu sína í Biskupstungum á ofanverðri 19. öld. Þegar líður á sólskinssumarið 1878 hleypur galskapur í vinnukonurnar í Bræðratungu og þær setja allt á annan endann. Næm eyru heyra vinda frelsis blása sunnan úr Evrópu og þá er freistandi að fylgja hjarta sínu þótt það geti reynst dýrkeypt.