Morð á Grand Alpine hótelinu

Forsíða kápu bókarinnar

Morðráðgáta með sjálfri fröken Marple, þekktustu söguhetju Agöthu Cristie, eftir vinsæla breska spennusagnahöfundinn Lucy Foley. Af útgáfu þessarar bókar stendur útgáfufélag Agöthu Cristie Bretlandi. Þetta er ný bók sem aðdáendur Agöthu Cristie hafa beðið eftir.

Grand Alpine hótelið stendur hátt í svissnesku Ölpunum, þar er stórfengleg fjallasýn og snævi þaktar skíðabrekkur og gestirnir koma víða að. Alræmda kvikmyndastjarnan, efnilegi stjórnmálamaðurinn, dularfulla eiginkonan, glannalegi vinurinn og glöggskygni læknirinn. En þegar einn gestanna fer lifandi inn í kláf og finnst látinn á fjallstindinum er ljóst að morðingi gengur laus á meðal þeirra. Spennan magnast og gamlar erjur koma upp á yfirborðið eins og sprungur í ísnum en ávallt fylgist einhver með úr skugganum. Hógvær en skarpskyggn kona: Ungfrú Marple. Hún hefur alla á hótelinu grunaða og það með réttu. Því að spurningin er ekki aðeins hver hafði ástæðu heldur hver verður næstur … Hér snýr brautryðjandi aftur í hrollvekjandi morðgátu metsöluhöfundarins Lucy Foley.