Múmíuráðgátan

Forsíða bókarinnar

Konan lá á maganum með aðra höndina kreppta. Hún hreyfði sig ekki en þau gátu séð að hún andaði. Herbert kraup við hliðina á Sallý. – Halló, sagði hann hljóðlega við konuna. Konan lauk hægt upp augunum. Og svo hvæsti hún á þau. – Gætið ykkar, krakkar. Gætið ykkar á skrímslinu!

Nótt eina, eftir miklar rigningar, opnast stórt jarðfall á enginu í bænum Eldsala. Ofan í holunni kemur í ljós gamall kjallari. Herbert kannast ekki við að þar hafi nokkurn tíma staðið hús. Á sama tíma leggst fnykur mikill yfir bæinn og í gröf í kirkjugarðinum finnast tvær tómar kistur. Hvað hefur orðið um hin látnu? Herbert og Sallý vinkona hans gera sér brátt ljóst að þau eru í mikilli hættu stödd. Tekst þeim að bjarga Eldsala eina ferðina enn eða er það þegar of seint?

Kristina Ohlsson er einn vinsælasti spennusagnahöfundur Norðurlanda. Ungmennabækur hennar (fyrir 8–13 ára) hafa líka slegið í gegn og verið þýddar á fjölda tungumála.

Múmíuráðgátan er sjálfstætt framhald hinna vinsælu bóka Uppvakningasótt og Leyndardómur varúlfsins.

„4 stjörnur af 5. Hræðileg, skemmtileg og grípandi.“ – Jennies boklista

„Frábær hrollvekja fyrir krakka á aldrinum 9–12 ára. Ógnvekjandi, spennnandi og hrífandi.“ – BTJ