Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Næstsíðasta líf Jens Ólafssonar Olsen

Forsíða kápu bókarinnar

Jens Ólafsson Olsen býr við hrakandi heilsu. Hann gerir sitt besta til þess að koma sér á réttan kjöl en þegar hann reynir óhefðbundnar lausnir hefur það óvæntar og óvelkomnar afleiðingar. „Bragi Páll er tabúmeistari landsins, nautabani grínsins! Ég er enn hlæjandi.“ Steinar Bragi

Gefum Jens sjálfum orðið: „Ég hef aldrei, og ég meina aldrei nokkurn tímann gefið betlara pening. Ég borga ekki krónu í góðgerðarmál, aldrei gert. Ekki einu sinni björgunarsveitarkallinn eða álfinn, bara lýg því blákalt að ég sé búinn að kaupa þegar fólk otar þessu að mér.“

„Nýr snillingur er fæddur á Íslandi!“

Ólafur Haukur Símonarson

„Bragi Páll er og verður einn af mínum uppáhaldshöfundum.“

Ingibjörg Iða Auðunardóttir, Morgunblaðið