Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Nætursöngvarinn

  • Höfundur Johanna Mo
  • Þýðandi Pétur Már Ólafsson
Forsíða bókarinnar

Hanna Duncker snýr aftur á æskuslóðirnar á eyjunni Öland – þar sem faðir hennar var dæmdur fyrir morð. Og það var nýr yfirmaður hennar í lögreglunni sem kom honum á bak við lás og slá sextán árum fyrr. Mögnuð glæpasaga þar sem leyndarmál voma yfir og samfélagið er langminnugt – og minni þess er miskunnarlaust.

Þú skilur ekki hverju þú ert að róta upp. Þú ert að eyðileggja allt.

Joel sem er 15 ára gamall finnst myrtur á víðavangi. Hanna rannsakar málið, enda þótt móðir fórnarlambsins hafi eitt sinn verið besta vinkona hennar. Vinkona sem Hanna yfirgaf fyrir mörgum árum. En það eru ekki allir ánægðir með að dóttir Lars Dunckers sé snúin aftur og Hanna uppgötvar að það getur haft alvarlegar afleiðingar að grufla í fortíðinni.

Johanna Mo skapar hér magnaða glæpasögu þar sem leyndarmál voma yfir og samfélagið er langminnugt – og minni þess er miskunnarlaust.

„Ávanabindandi.“ Adresseavisen

„Þessi bók er ávanabindandi. Frábær glæpaflétta og trúverðugar persónur leggja grunn að sögu sem er í senn kunnugleg og algjörlega einstök.“

Adresseavisen, Noregi

„Nætursöngvarinn er glæsilega skrifuð glæpasaga þar sem spennan eykst frá fyrstu síðu. Fléttan er skotheld og einstaklega vel hugsuð. Þetta er ein af þeim glæpasögum þar sem síðurnar fletta sér sjálfar og er ógjörningur að leggja frá sér.“ Litteratursiden, Danmörku

„Höruspennandi uns hið tragíska mál er leyst.“ Westfalen-Blatt, Þýskalandi

„Upphaf að seríu sem lofar hrikalega góðu.“ Dagens Nyheter, Svíþjóð