Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Nágrannavarsla

Forsíða bókarinnar

Hvaða hættur kunna að leynast í garði nágranna þíns? Er einhver í húsinu við hliðina sem á að standa autt?

Sonja Jansen er ein heima að lesa undir próf. Hún hefur tekið að sér að vökva fyrir nágrannann í rólegu úthverfi. Hún verður vör við umgang í húsinu og hringir í lögregluna. Stuttu síðar hverfur hún sporlaust ...

Þegar Sonja hringdi á lögregluna kom lögreglumaðurinn Lydia Winther, sem kölluð er Snö, á vettvang ásamt félaga sínum. Þær urðu ekki varar við neitt grunsamlegt sem gaf tilefni til að aðhafast og hurfu á braut. En Snö fann innra með sér að ekki er allt með felldu. Þegar hún sneri aftur að húsinu nokkru síðar var Sonja horfin.

Þegar Snö hefur leitina að Sonju fléttast gamalt fjölskylduleyndarmál inn í málið sem smám saman verður ógnvænlegra.

UNNI LINDELL er sannkölluð glæpasagnadrottning Noregs. Hún hefur tvívegis hreppt hin virtu Riverton-verðlaun í Noregi og vinsælar sjónvarpsmyndir hafa verið gerðar eftir sögum hennar sem m.a. hafa verið sýndar á RÚV.

Tilnefning: Riverton-verðlaunin

* * * * * „Þegar Lindell tekst best upp er lesandinn eins og límdur við blaðsíðurnar. Þetta leika fáir glæpahöfundar eftir ... Meistaralegar spennubókmenntir.“ – Adresseavisen

„Unni Lindell leikur sér að lesandanum á fimlegan hátt.“ – Dagens Næringsliv

„Unni Lindell skrifar frábærlega vel og lýsingar hennar og persónusköpun rista djúpt.“ – Trønder-Avisa

* * * * * „Krimmi í hæsta gæðaflokki!“ – VG