Njála á hundavaði

Forsíða kápu bókarinnar

Brennu-Njáls saga hefur allt sem góða sögu prýðir: ástir og afbrýði, vináttu og fjandskap, svik og hefndir, blóðuga bardaga og auðvitað dramatíska brennu. Fersk og brakandi útgáfa sem höfðar jafnt til forfallinna Njáluunnenda og þeirra sem lesa söguna í fyrsta sinn.

Hjörleifur Hjartarson setur sig í stellingar hins forna sagnaþular og endursegir Brennu-Njáls sögu, sem þekktust er Íslendingasagnanna, á sinn einstaka hátt, ófeiminn við að stíga inn með ábendingar og athugasemdir þegar við á. Njála á Hundavaði er Njála eins og þú hefur aldrei séð hana áður; snörp, fyndin og laus við málalengingar, án þess þó að víkja frá söguþræðinum. Rán Flygenring glæðir bókina lífi með upphafsstöfum sem vísa í gömlu handritin.

Hér setur Hjörleifur Hjartarson sig í stellingar hins forna sagnaþular og endursegir Brennu-Njáls sögu á sinn einstaka hátt, ófeiminn við að stíga inn með ábendingar og athugasemdir þegar við á. Njála á Hundavaði er snörp, fyndin og laus við málalengingar, án þess þó að víkja frá söguþræðinum. Rán Flygenring glæðir bókina lífi með upphafsstöfum sem vísa í gömlu handritin og útkoman er fersk og brakandi útgáfa af Njálu sem höfðar jafnt til forfallinna Njáluunnenda og þeirra sem lesa söguna í fyrsta sinn.