Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Nokkur orð um notagildi lífsins

og áður óþekkt ljóð

  • Höfundur Sigmundur Ernir Rúnarsson
Forsíða kápu bókarinnar

Áleitin ljóðabók eftir eitt af okkar helstu skáldum.

Dóttur mína,

dána

dreymir mig ekki veika,

aldrei örkumla,

hröra

en þannig er huganum

farið

í fastasvefninum

mildi hans

máir burtu

miskunnarleysið,

þjáninguna

þar til maður

vaknar.

„„Hún hefur allt til að bera sem góð ljóðabók á að hafa. Ljóðin eru hófstillt en meitluð. Þau kalla til lesandans í hógværð sinni. Miðla reynslu, lífssýn, tilfinningu og fegurð. Yndisleg bók.“ ⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, Fréttablaðinu (um Skáldaleyfi)