Nýtt eldhús eftir máli
Þegar Daníel missir vinnuna beinist öll athygli hans að eldhúsinnréttingunni. Möguleikar á úrbótum eru margir og heillandi. Honum veitist þó erfitt að vekja ástríðu konu sinnar gagnvart verkefninu. Hann gleymir sér yfir kynórum um starfsfólk innréttingabúða og ekki bætir úr skák þegar búsáhöldin lifna við og leggja orð í belg.
Nýtt eldhús eftir máli er nýtt leikrit eftir Friðgeir Einarsson. Verkið var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 17. september.
Friðgeir er sviðslistamaður og rithöfundur sem hefur sent frá sér skáldverk og leikrit í mörgum myndum. Meðal leikverka sem hann hefur samið og flutt eru Útlendingurinn – morðgáta og Club Romantica. Hann er auk þess einn af meðlimum leikhópsins Kriðpleirs.