Nýtt nafn
Sjöleikurinn VI-VII
Þriðja og síðasta bindið í stórvirki norska Nóbelshöfundarins, hinum svonefnda Sjöleik, sem er seiðmagnað verk þar sem lífsbarátta og hugsjónir mætast. Undir sléttu yfirborði ólga heitar tilfinningar og glíma við drykkjuskap tekur sinn toll. Í samspili gleði og sorgar er samt óbilandi trúin á náð Guðs alltumlykjandi.
Listmálarinn Ási býr í Bugðu skammt fyrir norðan Björvin. Hann hefur varla samband við nokkurn nema piparsveininn og útvegsbóndann Ásleik, sem er nágranni hans. Í Björgvin býr annar Ási sem líka er listmálari og þeir nafnar eru gamlir vinir. Líf þeirra tveggja er um margt undarlega líkt, en þó með talsverðum frávikum.
Í þessu þriðja bindi verksins nálgast aðfangadagur og Ási ætlar í fyrsta skipti að halda jól með Ásleiki og Gurru systur hans. Í þeim tilgangi sigla þeir Ásleikur, Ási og hundurinn Bragi saman á Dallinum hans Ásleiks inn Sognfjörð. Þeir hafa strauminn með sér, og sparifötin líka, og skiptast á að standa við stýrið. Tvö málverk hafa þeir líka meðferðis til að gefa Gurru í jólagjöf, en heima hjá henni mætir þeim ilmur af hangikjöti.