Óhugsandi líf
Ekkjan Grace Winters erfir óvænt hús á Ibiza eftir konu sem hún þekkti lauslega fyrir löngu síðan. Forvitnin verður skynseminni yfirsterkari og hún leggur land undir fót til að komast að því hver örlög kunningjakonu hennar urðu. Til að skilja sannleikann þarf hún að horfast í augu við fortíð sína og viðurkenna töfrana.
Matt Haig er höfundur alþjóðlegu metsölubókarinnar Miðnæturbókasafnið sem kom út á íslensku árið 2022. Óhugsandi líf hefur þegar komið út á yfir 20 tungumálum og er talin hafa sérlega góð áhrif á seratónínframleiðslu heilans.
Á metsölulista The New York Times
„Ævintýraferð full af spennu og óvæntri upplifun.“ (The New York Times)
„Hrá en hlý lofgjörð um það besta við að vera manneskja.“ (Benedict Cumberbatch)