Ókunnugt fólk
Áhrifamikil saga um brotna fjölskyldu og óuppgerða fortíð þar sem eldri hjón og uppkomin börn þeirra segja söguna hvert um sig. Síðan elsti sonurinn hvarf fyrir tuttugu árum hefur sorgin sundrað og þau hafa gengið hvert sína leið, ófær um að græða sárin, þar til helgina sem óvænt atvik neyðir þau til að horfast í augu og spegla sig hvert í öðru.