Opnist í neyð

Forsíða kápu bókarinnar

Í lífinu mætum við flóknum áskorunum. Til að takast á við þær þarf að beina huganum í rétta átt. Þessi bók er eins og neyðarkassi með bjargráðum handa öllum: okkur sjálfum, börnunum þegar þau fljúga úr hreiðrinu og fjölskyldunni þegar við vitum ekki hvernig best er að orða hlutina.

Dr. Julie Smith snýr aftur með handbók fulla af verkfærum til að takast á við áskoranir er varða geðheilbrigði og líðan í andartakinu þegar álagið er sem mest og daglega lífifið fer á hliðina.

Dr. Julie Smith hefur yfir tíu ára starfsreynslu sem klínískur sálfræðingur og var fyrsti fagaðilinn til að nýta sér TikTok við að kynna aðferðir úr meðferðarstarfi. Í þessari bók

kennir hún milljónum lesenda að finna leiðina í gegnum erfiðustu augnablik lífsins frekar en að vera að vinna sig í gegnum áföllin árum eða áratugum eftir að þau áttu sér stað. Hvað ef við getum lært að virkja tilfifinningar okkar og vera til staðar svo við getum unnið úr hlutunum og brugðist við aðstæðum á heilbrigðan hátt?