Örlög kringum sveima
Sagnaþættir um nafnkunnugt fólk fyrr á tíð – uppruna þess og ættartengsl, ástir og átök, vonir og vonbrigði, gleði og sorg. Hér eru raktar sögur fólks sem hvert með sínum hætti markaði spor í lífinu og skildi eftir sig litríkar minningar. Allir eiga sér sögu – og í sögum þeirra sem á undan okkur fóru leynist einnig brot af okkar eigin.
Höfundurinn fetar slóð genginna kynslóða og dregur saman brot úr lífi þeirra: uppruna, ættartengsl, búsetu, skapgerð og örlög. Smám saman raðast púslbitarnir saman og fortíðin tekur á sig skýrari mynd. Þar fléttast saman skráðar heimildir, frásagnir og minningar sem varðveist hafa frá einni kynslóð til annarrar. Úr verður litrík mynd af mannlegu lífi og ólíkum örlögum – og um leið áminning um að enginn fer um heiminn án þess að skilja eftir sig slóð.
Guðfinna Ragnarsdóttir er jarðfræðingur frá Stokkhólmsháskóla og blaðamaður frá Journalisthögskolan í Stokkhólmi. Hún kenndi við Menntaskólann í Reykjavík í nær þrjá áratugi og var ritstjóri Fréttabréfs Ættfræðifélagsins í aldarfjórðung. Hún hefur áður sent frá sér bækurnar Sagnaþætti Guðfinnu, þar sem hún lýsir lífi alþýðufólks víða um land, og minningabókina Á vori lífsins.