Ótíð í víti

Lífsreynslusaga

Forsíða kápu bókarinnar

Einstök og allt öðruvísi bók úr smiðju Gyrðis Elíassonar. Hér deilir hann með lesendum erfiðri lífsreynslu og dregur ekkert undan. Átakanleg og einlæg frásögn.

„Lesendur Gyrðis Elíassonar hafa alltaf haft grun um annan heim á bak við orð hans, jafnvel þegar þau sýnast tær og ljós og mynda fullkomlega eðlilega frásögn. Við skynjum, frekar en heyrum, einhverja undirtóna eða yfirtóna, eitthvað handan þess sem textinn sýnir okkur, stundum er það hátíðin að baki daganna, eins og góður rithöfundur orðaði það, stundum bíður dauðinn með bikar sinn fullan af myrkri eins og segir í ljóðinu. Töfrar og dulúð sagna og ljóða Gyrðis felast ekki síst í þessu og því að höfundur eftirlætur okkur lesendum alla túlkun.“

(Úr umsögn Halldórs Guðmundssonar)