Prestsetrið

saga um glæp

Forsíða bókarinnar

Sjötta bók Ármanns um lögregluteymi Kristínar og Bjarna, en hver þeirra er sjálfstæð. „Prestsetrið er bráðskemmtileg og vel uppbyggð sakamálasaga, Ármanni er líka lagið að skapa áhugaverðar persónur og sá hæfileiki nýtur sín vel í þessari sögu.“ Vikan

Kristín lögreglukona erfir óvænt gamalt prestsetur á landsbyggðinni, ásamt hálfbróður sínum. Setrið er á jörðinni Stóru-Hlíð þar sem eru aðeins fáein íbúðarhús önnur og eitt gistiheimili. Kristín sér húsið sem kærkomið athvarf frá glæpaerlinum í höfuðborginni. Á staðnum býr lítill en fjölskrúðugur hópur fólks á ólíkum aldri, á ólíkum stað í lífinu og með ólíkar þarfir og langanir – og einn morðingi.

Sigurjón Sighvatsson hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á Tíbrá úr sömu seríu.