Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Reimleikar

Forsíða bókarinnar

Ungur maður finnst kyrktur í Heiðmörk með rúmal, klút sem indverskir atvinnumorðingjar notuðu fyrr á öldum. Reimleikar er fimmta glæpasaga Ármanns Jakobssonar um rannsóknarlögreglurnar Kristínu, Bjarna og þeirra lið, sem notið hafa mikilla og vaxandi vinsælda.

Rannsóknarteymið sem lesendur Ármanns Jakobssonar þekkja úr fyrri bókum hans stendur frammi fyrir sérkennilegri ráðgátu því að þremur árum fyrr beitti tékkneskur morðingi nákvæmlega sömu aðferð við að myrða unga menn á Reykjum – en hann situr í fangelsinu á Hólmsheiði.

Ekki minnkar örvænting rannsóknarteymisins þegar annar maður finnst myrtur með nákvæmlega sama hætti. Og í báðum tilvikum hafa bláklæddar konur sést við morðstaðinn.

Reimleikar er fimmta glæpasaga Ármanns Jakobssonar um rannsóknarlögreglurnar Kristínu, Bjarna og þeirra lið, sem notið hafa mikilla og vaxandi vinsælda.