Salka Valka
Sagan af uppvexti og þroska hinnar stoltu og sterku Sölku Völku á Óseyri við Axlarfjörð er í senn saga þorps og svipmikilla einstaklinga. Þegar nýir vindar blása um samfélagið fara átakatímar í hönd – en ávallt leika ást og dauði undir. Bókin kom upphaflega út í tveimur bindum 1931–1932 og hefur verið gefin út margoft síðan heima og erlendis.