Höfundur: Halldór Laxness

Salka Valka

Sagan af uppvexti og þroska hinnar stoltu og sterku Sölku Völku á Óseyri við Axlarfjörð er í senn saga þorps og svipmikilla einstaklinga. Þegar nýir vindar blása um samfélagið fara átakatímar í hönd - en ávallt leika ást og dauði undir. Salka Valka kom upphaflega út í tveimur bindum 1931-1932 og hefur verið gefin út margoft síðan heima og erlendis.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Á íslenskum skóm Smásögur, greinar og ljóð Halldór Laxness Forlagið - Vaka-Helgafell Á íslenskum skóm inniheldur úrval af þekktustu smásögum Halldórs Laxness, nokkrar greinar og ljóð. Af smásögum hans eru birtar sögurnar: Fugl á garðstaurnum, Jón í Brauðhúsum, Lilja, Ósigur ítalska loftflotans í Reykjavík 1933 og Ungfrúin góða og Húsið. Þessi útgáfa er með nútímastafsetningu og orðskýringum.