Samfélag heilagra

Forsíða kápu bókarinnar

Samfélag heilagra er rannsókn á mannlegu samfélagi þar sem umbreytandi tímamót í lífi og dauða fólks eru krufin.

Sex höfundar flétta saman sjálfssögum um vígslur, veislur og nýtt upphaf þar sem tekist er á við spurningar um hlutverk trúarbragða í nútímanum og kannað hvernig manneskjan mótar sjálfsmynd sína í tengslum við það samfélag sem hún tilheyrir.

Bókin er samstarfsverkefni meistaranema í ritlist og hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands.