Selfangarinn
Lík af karlmanni með sérkennilega skotáverka finnst í fjöruborðinu í afskekktum firði norður á Ströndum. Líkskoðun leiðir í ljós að tennur hins látna höfðu áður verið meðhöndlaðar handan járntjaldsins og lögregluna grunar að fórnarlambið sé rússneskur flugumaður, kominn ólöglega til landsins frá Finnlandi.
Þetta er fyrsta bókin í hinni áhrifamiklu Reimar-seríu eftir íslensk-finnska rithöfundaparið Tjörva Einarsson og Seppo Mustaluoto, sem báðir eru með bakgrunn úr löggæslu.
Lík af karlmanni með sérkennilega skotáverka finnst í fjöruborðinu í afskekktum firði norður á Ströndum. Líkskoðun leiðir í ljós að tennur hins látna höfðu áður verið meðhöndlaðar handan Járntjaldsins og lögregluna grunar að fórnarlambið sé rússneskur flugumaður, kominn ólöglega til landsins frá Finnlandi. Fulltrúi finnsku öryggislögreglunnar er fenginn til aðstoðar í málinu.
Rannsóknarlögreglumaðurinn Reimar efast um fljótfærnislegar ályktanir yfirmanns síns. Antti Korhonen, hinn hægláti finnski samstarfsmaður, gjörþekkir starfsemi erlendra leyniþjónusta og hefur einnig fullan skilning á vandræðum Reimars í einkalífinu. Traust og trúnaður myndast milli þeirra félaga við rannsóknina en skyndilega hrynur allt sem þeir töldu sig vita um málið fyrir augum þeirra.