Síðasta fiðrildið

Ljóð frá Gaza

Forsíða kápu bókarinnar

Nima Hasan er palestínskt skáld og rithöfundur. Hún er fædd 1980 í Rafah á Gazaströndinni, þar sem hún hefur búið alla ævi. Eftir að hafa hrakist þaðan á brott mörgum sinnum er hún nú búsett í tjaldbúðum í Deir al-Balah. Þetta úrval kom fyrst út á sænsku fyrir ári síðan. „Mikilvægasta lesning haustsins,“ var skrifað í dómi í Dagens Nyheter.

Eftir innrás Ísraelsmanna í október 2023 fór Nima Hasan að birta ljóð sín á samfélagsmiðlum og sænskur þýðandi hreifst af þeim og þýddi nánast jafnóðum og gaf síðan út. Í umsögn um bókina sagði meðal annars: „Þetta er í fyrsta skipti í bókmenntasögunni sem ljóð eru beinlínis samin á meðan sprengjurnar falla og birt jafnóðum fyrir lesendur víða um heim.“ Skáldið og rithöfundurinn Mazen Maarouf sem hefur verið búsettur á Íslandi um árabil skrifaði um íslensku þýðinguna: „Þessi ljóð eru lifandi vitnisburður um dauða, sársauka og óorðuð hversdagsleg spursmál á Gaza. Það er einsog Nima Hasan gefi öllu brothættu og jaðarsettu ljóðrænan tón og heimspekilega vídd til að bjarga því frá eyðileggingu.“