Síðasta sumar Klingsors

Forsíða kápu bókarinnar

Síðasta sumar Klingsors eftir Nóbelsskáldið Hermann Hesse kom fyrst út árið 1919 og er einn af hápunktunum í bókmenntum þýska expressjónismans. Í bókinni segir frá síðasta sumri í lífi listmálarans Klingsors sem reynir að sigrast á dauðanum með því að mála nýjar og sífellt djarfari myndir.

Sögusvið bókarinnar er í kantónunni Tessin, skammt frá ítölsku landamærunum, en þar voru heimkynni Hermann Hesse um langt skeið.

Bókina prýða allmargar vatnslitamyndir sem höfundurinn málaði á sama tíma og hann skrifaði bókina.

Þýsk-svissneski rithöfundurinn, skáldið og listmálarinn Hermann Hesse (1877–1962) öðlaðist heimsfrægð fyrir skáldsögur sínar Sléttuúlfurinn og Siddharta sem báðar hafa komið út á íslensku. Hann hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1946.

„Dásamleg nóvella.“

Bertolt Brecht

„Að vel athuguðu máli tel ég þetta verk meðal hinna merkustu í nútíma prósa.“

Stefan Zweig