Síðasti leikurinn

Forsíða kápu bókarinnar

Kim stendur frammi fyrir einum miskunnarlausasta morðingja sem hún hefur nokkru sinni mætt. Mögulegar vísbendingar skipta hundruðum, og syrgjandi systirin neitar að tala við þau. Ómótstæðileg spennusaga frá metsöluhöfundinum Angelu Marsons þar sem hún kannar dökku hliðarnar á lífi undrabarna. Saga sem grípur mann heljartökum.

Seint á sumarkvöldi kemur rannsóknarfulltrúinn Kim Stone á vettvang hryllilegs morðs í Haden-Hill garðinum: kona um sextugt er bundin í rólu með gaddavír, með X skorið í hnakkann.

Fórnarlambið, Belinda Evans, var fyrrverandi prófessor í barnasálfræði. Þegar Kim og liðsmenn hennar rannsaka heimili hennar finna þau tösku, tilbúna til ferðalags, og byrja að afhjúpa flókið samband Belindu og Veronicu systur hennar.

Síðan finnast tvö lík til viðbótar, bæði með sömu einkennum, og Kim áttar sig á að hún er komin á slóð raðmorðingja. Þegar hún tengir fórnarlömbin saman kemst hún að því að þau hafa tekið þátt í árlegum samkomum fyrir undrabörn og voru á leiðinni þangað.

Getur Kim komist inn í huga morðingjans og komið í veg fyrir enn eitt morðið?

Hægt að lesa sem sjálfstæða sögu.