Sjáið okkur dansa

Forsíða bókarinnar

Annað bindið í þríleik Leïlu Slimani sem hún byggir á ættarsögu sinni en fyrsta bókin, Í landi annarra, kom út á íslensku árið 2021. Hér segir frá Aishu sem er augasteinn foreldra sinna, hins marokkóska Amins og Mathilde sem kemur frá Frakklandi. Lýst er átökum, umbrotum og ástríðum með húmor, kærleika og ísköldu raunsæi.