Sjálfstætt fólk
Saga hins þrjóska einyrkja, Bjarts í Sumarhúsum, og baráttu hans við allt og alla er bæði þjóðleg og alþjóðleg – sígild frásögn af hlutskipti fátæks fólks í hörðum heimi. Sjálfstætt fólk kom fyrst út í tveimur bindum 1934–1935 og hefur verið gefin út margsinnis síðan á ótal tungumálum.