Skelfing í Skrímslabæ

Forsíða kápu bókarinnar

Nýtt skólaár hefst í Skrímslabæ með tilheyrandi ævintýrum og skemmtilegum skarkala! Vampírurnar,varúlfarnir og hin skrímslin hafa vanist því að hafa mannabarnið Gullbrá í skólanum en núna bætast tvö börn í hópinn. Það er eitthvað skelfilega skrítið við þessi dularfullu systkini, þau Hans og Grétu.

Hvað er Hans með á samviskunni?

Mun Gréta nokkurn tíma tala aftur?

Var Gullbrá rænt af glorhungraðri norn og hvað ætlar Hans að gera í málunum?

Skelfing í Skrímslabæ er skondin og bráðfyndin saga eftir verðlaunahöfundinn Bergrúnu Írisi, prýdd gullfallegum teikningum Tinds Lilju.

Bókin er framhald af Skólanum í Skrímslabæ.