Skilnaðurinn

Forsíða kápu bókarinnar

Bea og Niklas hafa búið saman í þrjátíu ár í fínu hverfi í Stokkhólmi. Kvöld eitt, eftir ómerkilegt rifrildi, lætur Niklas sig hverfa. Bea á von á honum á hverri stundu með skottið á milli lappanna. En hann kemur ekki og heimtar skilnað. Tilnefningar: Bók ársins í Svíþjóð 2022 og Besta skáldsagan á Storytel í Svíþjóð 2022.

En kom skilnaðurinn í rauninni eins og þruma úr heiðskíru lofti? Er manneskjan sem vill skilja alltaf sökudólgurinn? Hvað leynist undir yfirborðinu ef grannt er skoðað?

Sænski metsöluhöfundurinn Moa Herngren (f.1969) er fyrrverandi aðalritstjóri Elle Magazine í Svíþjóð og eftirsóttur handritahöfundur. Hún er meðal annars meðhöfundur hinna vinsælu sjónvarpsþátta um Bónus-fjölskylduna. Fyrri bók hennar, Tendamamman, fékk frábærar viðtökur.

„Herngren skrifar snilldarlega um sambönd og bældar tilfinningar. /.../ Henni tekst frábærlega að koma til skila ólíkum sjónarhornum og lýsa því hvernig litlir hversdagslegir hlutir geta orðið að óyfirstíganlegum hindrunum.“ – Smålandsposten

„Með hrifningu í bland við skelfingu fylgjumst við með hvernig tilvist og öryggiskennd fjölskyldu hrynur. Afar vel skrifaður harmleikur þar sem enginn er saklaus.“ – Expressen

„Í Skilnaðinum sýnir Moa Herngren báðar hliðar sem er sannarlega hressandi.“ – Uppsala Nya Toidning

„Afar hæfileikarík.“ – Dagens Nyheter

„Moa Herngren slær alveg rétta tóninn ... Hún er einstaklega fær í ... að lýsa samböndum, sérstaklega þegar þau eru undir álagi.“ – Sydsvenska Dagbladet