Skrílmálið
index
Líkt og oft áður samþættir höfundur skáldskap, sagnaminni, hugmyndir og þjóðfræðibrot. Af fundvísi dregur hann fram úr skúmaskotum íslenskrar ritmenningar furðulegustu staðreyndir og setur þær í samhengi eða tengir við óskyld atvik, lyftir þeim á stall eða veltir úr sessi, oftar en ekki með gamansömu ívafi.
Læsi og ólæsi, hámenning og lágmenning, málfarið að fornu og nýju — hvaðeina sem tengja má við tímanna safn og margslungnar hugrenningar Íslendinga um tungumálið öldum saman.
Skrílmálið fjallar um íslenska tungu í aldanna rás og kallast á við fyrri bækur höfundar sem hlotið hafa verðskuldaða athygli og búa hver með sínum hætti yfir seiðandi lestrarhvatningu.