Skuggar af Kili
Það hvílir bölvun á þessari fjölskyldu.
Eftir dóm um banvænan sjúkdóm og sonarmissi verður Halldóri hugsað til gamalla sagna um fjölskyldubölvun sem rakin var til örlaga Reynistaðarbræðra sem urðu úti á Kili árið 1780. Í örvæntingu sinni gefur Halldór sig á vald þessari sögu, um leið og hann tekst á við sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi.
Í þessari áhugaverðu og vel fléttuðu sögu tekst höfundi að spegla aldagamla örlagasögu og átakanlegan tilvistarvanda nútímamanns. Jafnhliða er lesanda boðið í ferðalag þar sem kvikna gömul örlög, mannlegir brestir, þvermóðska, bölbænir og áhrínsorð.
Birgir Tjörvi Pétursson starfar sem lögmaður í Reykjavík. Skuggar af Kili er hans fyrsta skáldsaga.