Höfundur: Birgir Tjörvi Pétursson

Skuggar af Kili

Það hvílir bölvun á þessari fjölskyldu. Eftir dóm um banvænan sjúkdóm og sonarmissi verður Halldóri hugsað til gamalla sagna um fjölskyldubölvun sem rakin var til örlaga Reynistaðarbræðra sem urðu úti á Kili árið 1780. Í örvæntingu sinni gefur Halldór sig á vald þessari sögu, um leið og hann tekst á við sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi.