Skuggaríkið
Nú rannsaka þau Juncker og Signe morð á uppkomnum syni umdeilds loftslagsráðherra. Um leið fer fram rannsókn á sprengingu í elsta kolaorkuveri Danmerkur. Tengjast þessi mál ef til vill? Hér er fjórða bókin í vinsælli krimmaritröð, bæði æsispennandi og vel skrifuð.
Maður lætur lífið í mikilli sprengingu í Norður-Jótlandsorkuverinu – einu síðasta kolaorkuveri Danmerkur og gríðarlegum mengunarvaldi. Þegar lögreglan finnur brot úr árásardróna í rústunum breytist það sem var rannsókn á hörmulegu slysi í rannsókn á þrautskipulagðri árás. Róttæk samtök lýsa yfir ábyrgð á árásinni. Í fyrsta sinn hafa hryðjuverk gegn loftslagsvánni beinst gegn Danmörku.
Þennan sama morgun finnst maður myrtur í glæsivillu í norðurhluta Kaupmannahafnar. Fórnarlambið er sonur umdeilds loftslagsráðherra landsins og málið og rannsókn lögreglunnar vinda enn upp á sig þegar krufning leiðir í ljós að hinn látni hafði verið í mikilli kókaínneyslu – og reynist auk þess hafa haft náin tengsl við áður óþekkt eiturlyfjagengi.
Eru tengsl milli þessara tveggja verknaða? Juncker og Signe koma ekki auga á þau í fyrstu, en svo komast samstarfsmenn þeirra að nokkru sem opnar málið.
Fjórða bókin í geysivinsælli krimmaritröð hjónanna Kim Faber og Janni Pedersen. Áður útkomnar á íslensku eru: Kaldaslóð, Meinsemd og Kyrkjari.