Smámunir sem þessir

Forsíða bókarinnar

Árið er 1985 í litlu þorpi á Írlandi. Jólin nálgast og þar með mesti annatími Bills Furlong, kolakaupmanns og fjölskyldu hans. Snemma morguns, þegar Bill er að afhenda kol í klaustrið við bæinn, gerir hann uppgötvun sem neyðir hann til þess að horfast í augu við eigin fortíð og hina flóknu þögn allra í bænum – þar sem lífið stjórnast af kirkjunni.

„Þessi bók er algjör perla,“

Egill Helgason, Kiljan

Smámunir sem þessir eftir Claire Keegan, eina virtustu skáldkonu Íra, er óvenjulega áhrifamikil saga um von, hugrekki og samlíðan sem farið hefur sigurför um heiminn. Sagan var tilnefnd til hinna virtu Booker-verðlauna árið 2022 og hefur hvarvetna uppskorið mikið lof og vinsældir.

„Þessi stutta og látlausa saga hefur alla burði til að verða sígild; djúphugul, áhrifamikil og alþjóðleg. Náðu þér í tvö eintök: eitt til að eiga og hitt til að gefa.“

Washington Post

„Bók sem allir þurfa að lesa.“

Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan

„Þéttofin veisla um góðmennsku og eðli hversdagslífsins.“

Sunday Times

„Smámunir sem þessir er mjög hefðbundin saga í stíl og frásagnarhætti en afar vel sviðsett, skrifuð og byggð. Og áhrifarík er hún, svo sannarlega.“

Einar Falur Ingólfsson, Morgunblaðið

„Sérhver setning er hugsuð og kraftmikil og rúmar heilu bindin af sögu samfélags. Sérhvert orð er rétt og á réttum stað og áhrifin eru ótrúlega sterk.“

Hilary Mantel, Booker-verðlaunahafi

„Frábærlega falleg saga.“

Douglas Stuart, Booker-verðlaunahafi