Sögu ríkari
Vinkonurnar Lovísa og Patricia fara í haustlitaferð til Kyoto, fyrrum höfuðborgar Japans. Þær eru með sögur og ást á heilanum. Lovísa lifir sig inn í frásagnir Patriciu og reynslusögurnar verða því á við lestur góðrar bókar. Stundum er sagt að sjón sé sögu ríkari, en er það alltaf þannig? Saga á einföldu máli.
Sögu ríkari er stutt og aðgengileg bók um vináttu og mörk veruleika og skáldskapar.
Karítas Hrundar Pálsdóttir hefur áður gefið út bækurnar Árstíðir, Dagatal og Vikuspá sem innihalda sögur á einföldu máli.