Sóley og Fífa finna dreka
Frænkurnar Sóley og Fífa eru bestu vinkonur en búa í sitthvorum landshlutanum. Það er því alltaf mikil ánægja sem fylgir því að hittast í sveitinni hjá ömmu og afa þar sem ævintýrin eru aldrei langt undan.
Í bókinni Sóley og Fífa finna dreka efla stúlkurnar hugrekkið sitt um leið og þær halda áfram að rækta vináttuna. Þær kynnast einnig fleiri fuglum, blómum og öðrum spennandi fyrirbærum í náttúrunni.
Sagan er sjálfstætt framhald af bókinni Sóley og Fífa fara í berjamó og hentar öllum aldurshópum en er sérstaklega hugsuð fyrir börn á aldrinum 3–7 ára.
Höfundurinn, Þorbjörg Sandra Bakke, hefur starfað í umhverfismálum í nær tvo áratugi og sendir hér frá sér sína aðra bók. Hún er með menntun í stjórnmálafræði, náttúrufræði og siðfræði og sækir innblástur í þessi ólíku fagsvið í skrifum sínum.