Höfundur: Þorbjörg Sandra Bakke

Sóley og Fífa finna dreka

Frænkurnar Sóley og Fífa eru bestu vinkonur en búa í sitthvorum landshlutanum. Það er því alltaf mikil ánægja sem fylgir því að hittast í sveitinni hjá ömmu og afa þar sem ævintýrin eru aldrei langt undan. Í bókinni efla stúlkurnar hugrekkið sitt og vináttu um leið og þær kynnast fuglum, blómum og öðrum spennandi fyrirbærum í náttúrunni.

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Sóley og Fífa fara í berjamó Þorbjörg Sandra Bakke Samofið Frænkurnar Sóley og Fífa eru bestu vinkonur en búa í sitthvorum landshlutanum. Það er því mikil eftirvænting þegar þær hittast. Í bókinni segir frá vináttu þeirra, fallegum samskiptum, fuglum, blómum, náttúrunni og auðvitað berjunum! Sóley og Fífa fara í berjamó er fyrsta sagan í nýjum bókaflokki um þessar lífsglöðu og forvitnu frænkur.