Stóra fagra frábæra líf

Forsíða kápu bókarinnar

Í grípandi og nýrri skáldsögu eftir Emily Henry keppast tveir höfundar um tækifærið til að skrifa sögu stórbrotinnar konu sem er með þó nokkra ása uppi í erminni.

Bjartsýniskonan Alice Scott er enn á höttunum eftir stóra tækifærinu sem höfundur. Hayden Anderson er mennskt þrumuský, sem státar af Pulitzer-verðlaunum.

Bæði ætla þau að reyna sig við ritun ævisögu konunnar sem segist vera Maragaret Ives, fyrrum prinsessa slúðurblaðanna og erfingi fjölmiðlaveldis einnar þekktustu og umdeildustu fjölskyldu tuttugustu aldarinnar.

Margaret ræður þau bæði til reynslu í mánaðartíma, til þess að ákveða hver á að segja söguna hennar. Alice hefur mánuð til þess að vinna hjarta þessarar goðsagnakenndu konu, landa alvöru starfi til að sannfæra sína ósannfærðu fjölskyldu um að hún sé á réttri hillu og sanna um leið að Hayden gerir rétt í því að líta á hana sem raunverulegan keppinaut.

Vandinn er þó sá, að svo virðist sem Margaret segi hvorugu þeirra alla söguna, og á milli þeirra þróast óþægileg spenna vegna trúnaðarsamnings sem þau þurfa að virða.

Það er ljóst að saga Alice og Hayden, rétt eins og sagan sem Margaret er að spinna, gæti verið ráðgáta, harmleikur eða ástarsöngur. Það fer bara eftir því hver segir hana.